ÍA >> Umf.Skipaskagi
30. apríl 2010 11:28

Lokahóf drengjaflokks

 Körfuknattleiksfélag ÍA hélt nýverið lokahóf fyrir drengjaflokk í Gamla Kaupfélaginu. Horft var á viðureign Snæfells og Keflavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en auk þess voru veitt verðlaun fyrir veturinn. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þá sem fengu verðlaun og meðfylgjandi er mynd af verðlaunahöfum.

 

Efnilegastur: Davíð Ásgeirsson

Besti sóknarmaðurinn: Davíð Ásgeirsson

Besti varnarmaðurinn: Jón Unnar Guðmundsson Mestu framfarir: Baldvin Már Kristjánsson Besta mæting á æfingar: Pálmi Snær Hlynsson

 

 
8. apríl 2010 20:34

Aðalfundur Körfuknattleiksfélags Akraness þriðjud. 13. apríl nk.

Aðalfundur Körfuknattleiksfélags Akraness verður haldinn þriðjudaginn 13. apríl nk. kl: 19:30 í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum.  Dagkrá samkvæmt lögum félagsins. 

 
15. mars 2010 14:39

Karfa: 11 flokkurinn stóð í ströngu um helgina.

Um helgina fór fram 4. umferðin í Íslandsmóti drengja í 11. flokki í körfubolta. Á Jaðarsbökkum var C-riðillinn spilaður og auk heimamann þá mættu til leiks: Skallagrímur og Valur.

Sjá meira varðandi nánari umfjöllun um leikina og stigaskor leikmanna.

meira...
 

 
13. mars 2010 14:00

Fínn leikur Skagamanna dugði ekki gegn Tota og Silver

Skagamenn geta gengið stoltir frá þessu tímabili.
Í gærkvöldi spiluðu Skagamenn síðasta leikinn á þessu keppnistímabili og það fer í hlut okkar að falla ásamt Hrunamönnum.

 

Leikurinn í gær fór fram í Borgarnesi og um hörkuleik var að ræða, það var ekki að sjá að annað liðið væri fallið og hitt að berjast um heimaleikjarétt í úrslitakeppninni.

 

Erlendu leikmenn Skallagríms voru allt í öllu og skoruðu þeir Konrad Tota og Silver Laku 71 stig saman af 94 stig þeirra í leiknum. Sjá meira.

meira...
 

 
10. mars 2010 23:30

Síðasti leikurinn á tímabilinu á föstudag

Frá fyrri leik liðanna sem fram fór í Desember.
 Á föstudag  spila  Skagamenn síðasta leikinn sinn á þessu keppnistímabili og fer leikurinn fram í Borgarnesi. Þar sem liðið er fallið er bara að spila upp á heiðurninn í þessum leik, leikurinn skiptir töluverðu máli fyrir Borgnesinga en þeir eru að reyna að ná sér í heimaleikja rétt í úrslitakeppninni.

 

Strákarnir eru staðránir í því að enda tímabilið vel og ætla ekki að gefa Sköllunum neitt.

 

Fjölmennum á síðasta leikinn hjá strákunum en leikurinn hefst kl: 19:15. ÁFRAM SKAGAMENN.

 
10. mars 2010 10:04

Flottir Skagastrákar á Nettómóti

Ísak Örn Elvarsson
 Helgina 6. og 7. mars tóku tvö lið frá ÍA þátt í hinu árlega Nettó móti í Reykjanesbæ. bæði liðinin stóðu sig með mikilli prýði, yngri strákarnir hafa bætt sig mikið frá síðasta móti og eldri hópurinn barðust eins og ljón gegn mun reyndari liðum. En flestir í eldri hópnum voru að taka þátt í sínu fyrsta móti. Það verður gaman að fylgjast með þessum strákum í framtíðinni.

Hér má sjá myndir af Skagastrákunum á mótinu.

 
6. mars 2010 16:35

Tap í síðasta heimaleik ársins og fallnir í 2. deild

Trausti og Hörður spiluðu vel í gær.
 Skagamenn eru fallnir í 2. deild þó enn sé einn leikur eftir af tímabilinu. Skaginn tók á móti Hetti í gærkvöldi og þurftu nauðsinlega á sigri að halda til að eiga von um að halda sæti sínu í 1. deild.

 

Höttur byrjaði leikinn betur og var skrítið að sjá leikmenn Skaganns því þeir spiluðu langt undir getu og baráttan var nánast engin í upphafi leiks.

 

Það skal ekkert tekið af Hattarliðinu að þeir spiluðu vel með bandríkjamanninn sinni sem lagng besta mann en hann fór hamfórum í gær og allur leik þeirra fór í gegnum hann. sjá meira.

meira...
 

 
3. mars 2010 22:20

ÍA - Höttur á föstudag kl: 19:15

Strákarnir verða að vinna þennan leik!!.

Skagamenn spila sinn síðasta heimaleik í vetur á föstudaginn en þá koma Hattar-menn í heimsókn. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið.

 

Með sigri okkar manna halda þeir enn í vonina um að halda sæti sínu í deildinni en ef ekki er liðið fallið og Höttur sleppur við fallið. Þegar liðin mættust á Egilstöðum  fyrr í vetur sigruðu Skagamenn 75-73.

 

Nú er mikilvægt að strákarnir fái góðan stuðning í þessum leik og hvetjum við alla að fjölmenna á leikinn sem hefst kl: 19:15 á Jaðarsbökkum, 1000 krónur inn og frítt fyrir 16 ára og yngri.

 

ÁFRAM SKAGAMENN!.

 
1. mars 2010 16:35

KFÍ númeri of stórir

27. febrúar 2010 23:55

Skagamenn á leið Vestur

20. febrúar 2010 10:10

Skagamenn köstuðu frá sér sigrinum!

17. febrúar 2010 19:10

ÍA - Valur á föstudag

13. febrúar 2010 11:40

Skagamen sáu aldrei til sólar

1. febrúar 2010 12:30

ÍA upp í 7. sæti eftir góðan sigur - (umfjöllun)

1. febrúar 2010 10:21

Körfubolti: 11 flokkur stóð sig vel um helgina.

27. janúar 2010 11:55

ÍA - Hrunamenn á föstudag

26. janúar 2010 07:40

Slæmur kafli í þriðja leikhluta gerði útslagið

15. janúar 2010 23:55

Gríðarlega sætur sigur - (umfjöllun)

14. janúar 2010 19:50

ÍA - Ármann á morgun

9. janúar 2010 12:30

Tap í Þorlákshöfn í hörkuleik

7. janúar 2010 07:30

Fyrsti leikur ársins

23. desember 2009 18:00

Gleðileg jól!

19. desember 2009 18:10

Frábær fyrri hálfleikur dugði ekki til

14. desember 2009 12:10

Heimaleikur á föstudag á Vesturgötu!


eldri fréttir

Styrktaraðilar

Körfuknattleiksfélags

Akraness

 

 

 

 

Íþróttabandalag Akraness, Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum, Sími: 895-1278